Skilmálar
Peak Fitness ehf.
Kt. 631024-1300
Vallarbraut 9, 300 Akranes
EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á SÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM SÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.
Réttur til að hætta við pantanir
Peak Fitness ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Peak Fitness ehf. áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu á því námskeiði sem notandi skráði sig í og þarf að klára að greiða fyrir tímabilið ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki að ganga.
Efni á heimasíðu og námskeiðum, höfundaréttur
Allt efni á síðu Peak Fitness, í appi Peak Fitness og á netnámskeiðum sem félagið býður upp á er eign Peak Fitness og varið höfundarétti. Þetta á einnig við um æfingaprógramm, næringarplön og annað efni sem sett er upp fyrir notanda persónulega.
Notanda er heimilt að nota efnið til eigin nota. Öll afritun, dreifing eða endurútgáfa á efninu er óheimil.
Einstaklingsaðgangur
Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina eða einan.
Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið
Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) borgar fyrirfram eða fær reikning í heimabanka. Þegar hann samþykkir skilmála og/eða greiðir fyrir vöru er ekki hægt að hætta við pöntun. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.
Endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eða að hætta við greiðslu eftir að búið er að samþykkja skilmála og/eða greiða fyrir vöru. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þátttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.
Verð og áskrift
Verð fyrir þjónustu Peak Fitness er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og er að finna á síðu Peak Fitness. Peak Fitness áskilur sér rétt til að breyta verðum og ber ábyrgð á því að þau séu rétt hverju sinni á heimasíðunni.
Þegar notandi hefur samþykkt skilmála þessa er kominn á samningur milli hans og Peak Fitness. Samningar eru með binditíma, 3, 6 eða 12 mánuði, eftir því hvaða samningslengdir eru í boði samkvæmt gildandi verðskrá hverju sinni. Þeir framlengjast ekki sjálfkrafa að binditíma loknum. Notanda er þó ávallt frjálst að óska eftir framlengingu.
Greitt er mánaðarlega út samningstímann. Það er á ábyrgð notanda að réttar greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu og að þeim sé haldið réttum á samningstímanum.
Um vanskil, lokun aðgangs og innheimtu gildir kaflinn Vanskil og innheimta.
Val á þjálfara
Notandi velur þjálfara við skráningu og er sá þjálfari skjalfestur sem hluti af samningnum. Þjálfarinn sem valinn er gildir út samningstímann og ekki er hægt að skipta yfir til annars þjálfara á tímabilinu, hvorki að ósk notanda né gegn greiðslu mismunar á milli þjálfara.
Verð fer eftir því hvaða þjálfari er valinn samkvæmt gildandi verðskrá. Sumir þjálfarar bjóða ekki allar samningslengdir og kann framboð á plássum hjá einstökum þjálfurum að vera takmarkað. Óski notandi eftir þjálfara sem er fullbókaður getur hann skráð sig á biðlista, en Peak Fitness getur ekki ábyrgst að pláss losni innan tiltekins tíma.
Peak Fitness áskilur sér rétt til að fela öðrum þjálfara innan fyrirtækisins þjónustu við notanda ef þjálfari lætur af störfum, forfallast eða getur af öðrum ástæðum ekki sinnt þjónustunni. Í slíkum tilvikum er notanda tilkynnt um breytinguna.
Stök námskeið og vörur
Kaupi notandi stakt námskeið eða vöru greiðir hann fyrirfram eða fær reikning í heimabanka.
Um rétt notanda til að hætta við fer samkvæmt kaflanum Endurgreiðsluréttur og réttur til að hætta við.
Uppsögn samnings
Þegar samningur er kominn á er ekki hægt að stöðva þjálfunina fyrr en binditíminn er liðinn. Á móti framlengist binditíminn ekki sjálfkrafa. Þetta hefur ekki áhrif á rétt notanda til að hætta við innan 14 daga, sbr. kaflann Endurgreiðsluréttur og réttur til að hætta við.
Ekki er hægt að breyta samningslengd á tímabilinu eða greiða mismun á milli samninga. Sá samningur sem notandi skráði sig í gildir út tímabilið.
Komi upp heilsufarsástæður sem hafa áhrif á þjálfunina skal notandi láta þjálfara sinn vita. Slíkar aðstæður veita ekki sjálfkrafa rétt til uppsagnar, en Peak Fitness skoðar hvert tilvik fyrir sig og metur hvað hægt er að gera.
Fari notandi ekki eftir skilmálum þessum áskilur Peak Fitness sér rétt til að segja samningnum upp fyrirvaralaust, án endurgreiðslu, og notanda ber þá að ljúka greiðslum fyrir samningstímabilið.
Endurgreiðsluréttur og réttur til að hætta við
Fyrstu 14 dagana má hætta við
Skrái notandi sig á vef Peak Fitness eða á viðburði má hann hætta við samninginn innan 14 daga frá skráningu, án þess að tilgreina ástæðu. Tilkynningu skal senda á peakfitness@peakfitness.is innan frestsins. Þetta er réttur notanda samkvæmt lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga.
Hvað notandi greiðir fer eftir einu: hvort búið sé að setja æfingaprógramm hans og næringarplan inn í appið.
Ef plönin eru ekki komin inn
Þá fær notandi allt endurgreitt. Samningurinn fellur niður og notandi greiðir ekkert.
Ef plönin eru komin inn
Þá greiðir notandi upphafsgjald, kr. 38.900. Það er verðið fyrir uppsetninguna sjálfa, upphafsviðtal, mælingar, æfingaprógramm og næringarplan, og er það sama óháð því hvaða þjálfari eða samningslengd var valin. Notandi staðfestir við skráningu að hann vilji að þessi vinna fari fram strax.
Það sem notandi hefur greitt umfram upphafsgjaldið fær hann endurgreitt og það sem eftir er af samningstímanum fellur niður. Sé upphafsgjaldið hærra en það sem þegar hefur verið greitt er mismunurinn innheimtur með reikningi.
Endurgreiðsla berst notanda innan 14 daga frá því að tilkynningin barst, með sama greiðslumáta og notandi notaði.
Eftir að 14 dagarnir eru liðnir
Þá gildir sá binditími sem valinn var, 3, 6 eða 12 mánuðir, og samningurinn er ekki endurgreiddur, hvorki að hluta né að fullu. Það á einnig við þótt notandi hafi ekki nýtt sér þjálfunina. Um uppsögn og vanskil gilda kaflarnir Uppsögn samnings og Vanskil og innheimta.
Stök netnámskeið
Um leið og notandi fær aðgang að netnámskeiði, eftir að hafa staðfest að hann vilji aðganginn strax, fellur endurgreiðsluréttur niður.
Vörur
Kaupi notandi vöru af Peak Fitness má hann skila henni innan 14 daga frá móttöku, ónotaðri og í því ástandi sem hún var í. Hafa skal samband á peakfitness@peakfitness.is. Notandi ber kostnað af því að koma vörunni til baka og Peak Fitness endurgreiðir innan 14 daga frá því að varan berst.
Vanskil og innheimta
Reikningar eru gefnir út mánaðarlega út samningstímann og skulu greiddir á gjalddaga. Sé reikningur ekki greiddur innan 10 daga frá gjalddaga lokast aðgangur notanda að appi Peak Fitness og annarri þjónustu félagsins á meðan vanskil standa yfir. Aðgangur opnast aftur um leið og greiðsla hefur borist.
Notandi ber ábyrgð á að greiða samninginn að fullu út binditímann þótt hann nýti sér ekki þjónustuna, enda er það alfarið á ábyrgð notanda að nýta sér þá þjálfun og það aðhald sem hann hefur keypt.
Lokun aðgangs vegna vanskila fellir ekki niður greiðsluskyldu notanda. Samningurinn heldur gildi sínu út binditímann og notandi greiðir fyrir allt tímabilið, enda stafar lokunin af vanskilum notandans sjálfs og þjónustan stendur honum til boða á ný um leið og greitt hefur verið.
Af gjaldföllnum kröfum reiknast dráttarvextir samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá gjalddaga til greiðsludags. Notandi greiðir að auki innheimtukostnað samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008 og reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar.
Séu tveir eða fleiri reikningar í vanskilum er Peak Fitness heimilt að senda notanda skriflega greiðsluáskorun með minnst 10 daga greiðslufresti. Verði ekki greitt innan frestsins er Peak Fitness heimilt að rifta samningnum og krefja notanda í einu lagi um eftirstöðvar samningstímans, auk áfallinna vanskila, vaxta og kostnaðar.
Peak Fitness er heimilt að fela innheimtuaðila innheimtu vanskilakrafna og að miðla til hans þeim upplýsingum um notanda og kröfuna sem innheimtan krefst. Innheimtuaðili Peak Fitness er Inkasso. Sé krafa komin í innheimtu þar er hún ekki lengur í höndum Peak Fitness og skal notandi snúa sér beint til Inkasso um greiðslu, greiðsludreifingu og frekari upplýsingar.
Eigin ábyrgð
Notandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum og þjónustu frá Peak Fitness. Notandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá Peak Fitness.
Peak Fitness hvetur notanda til að hlusta á eigin líkama og huga ávallt að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustuna. Sé um meiðsli eða veikindi að ræða hvetur Peak Fitness notanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en þjónusta er keypt.
Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá Peak Fitness staðfestir notandi að hann beri þessa ábyrgð, þ.e. að hann nýti þjónustuna á eigin áhættu.
Takmörkun ábyrgðar
Peak Fitness ber ekki ábyrgð á:
- Meiðslum, slysum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu Peak Fitness á eigin ábyrgð.
- Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í tölvu eða hugbúnaðarkerfum.
- Tjóni eða óþægindum sem kunna að hljótast af hvers konar misnotkun eða mistökum við meðferð upplýsinga sem fara á milli þjónustuveitanda og notanda. Hér getur t.d. átt við ef þriðji aðili brýst inn í tölvukerfi þjónustuveitanda Peak Fitness eða tölvukerfi Peak Fitness eða notenda og stelur eða misnotar upplýsingar á annan hátt.
- Tjóni eða óþægindum vegna annarra atvika sem talin eru óviðráðanleg (e. force majeure).
- Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til Peak Fitness í gegnum appið. Peak Fitness skuldbindur sig til að vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.
Trúnaður
Peak Fitness heitir notanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru hvorki seldar né afhentar þriðja aðila í markaðslegum tilgangi.
Peak Fitness nýtir þjónustu utanaðkomandi þjónustuaðila við rekstur sinn, meðal annars við hýsingu vefsvæðis, þjálfunarapp, tölvupóstsendingar, bókhald og innheimtu. Slíkir aðilar vinna upplýsingar fyrir hönd Peak Fitness, mega ekki nýta þær í eigin þágu og eru bundnir trúnaði.
Að öðru leyti eru upplýsingar ekki afhentar þriðja aðila nema Peak Fitness sé skylt að gera það samkvæmt lögum eða að lögmætri beiðni yfirvalda.
Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Ágreiningur og varnarþing
Um skilmála þessa gilda íslensk lög.
Komi upp ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samtali við Peak Fitness getur notandi vísað honum til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða til íslenskra dómstóla.
Breytingar
Peak Fitness áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Breytingar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á síðunni og gilda um skráningar sem gerðar eru eftir það.
Hafi notandi þegar gert samning gilda um hann þeir skilmálar sem í gildi voru við skráningu hans.
Notendur
Með hugtakinu "notendur" í hvaða falli sem er, fleirtölu eða eintölu, er átt við þá sem nýta sér þjónustu Peak Fitness. Allir þeir sem nýta sér þjónustu Peak Fitness verða að lesa skilmála þessa og samþykkja við skráningu á vefsvæði. Notendur fá aðgang að appi Peak Fitness og bera þeir ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og lykilorðs.
Notendum er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum eða veita öðrum aðgang að appi Peak Fitness. Peak Fitness ber enga ábyrgð á hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar komist yfir aðgangsupplýsingar notenda. Verði notandi þess var að óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans að appi Peak Fitness, þá skal hann samstundis láta Peak Fitness vita.
Notandi ber fulla ábyrgð á því að upplýsa Peak Fitness um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við nýtingu á þjónustunni.
Nánari upplýsingar
Þurfi notandi nánari upplýsingar eða vilji koma á framfæri ábendingum eða kvörtunum má senda fyrirspurn á peakfitness@peakfitness.is og verður henni svarað eins fljótt og auðið er.
Gildistími
Skilmálar þessir gilda frá 6. ágúst 2026.
Fyrri skilmálar frá 15. október 2024.
Hægt er að nálgast eldri útgáfur með skilaboðum í gegnum peakfitness@peakfitness.is