Terms of service

Peak fitness ehf

Kt: 631024-1300

Vallarbraut 9, 300 Akranes

annajgisla@gmail.com

saemi151297@gmail.com

 

EFTIRFARANDI SKILMÁLAR GILDA UM HEIMSÓKN ÞÍNA Á SÍÐUNA OG ÖLL VIÐSKIPTI SEM ÞÚ KANNT AÐ GERA UM SÍÐUNA, NÚ EÐA SÍÐAR.

Réttur til að hætta við pantanir

Peak fitness ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Peak fitness ehf áskilur sér rétt til að segja upp áskrift án endurgreiðslu á því námskeiði sem notandi skráði sig í og þarf að klára að greiða fyrir tímabilið ef samband milli kúnna og þjálfara er ekki að ganga.

Efni á heimasíðu og námskeiðum / Höfundaréttur

Allt efni á síðu Peak fitness ehf og allt efni á netnámskeiðum sem seljandi bíður upp á er í eigu seljanda. Kaupanda er óheimilt að afrita efnið eða að deila því áfram.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

Einstaklingsaðgangur

Óheimilt er að deila vörum eða áskrift með öðrum sem hefur ekki greitt fyrir aðgang að tiltekinni vöru eða þjónustu. Þú kaupir aðgang fyrir þig eina/einan.

Greiðsluskylda kaupanda (iðkanda) þegar keypt er stakt námskeið

Kaupandi sem kaupir stakt námskeið (eða aðra vöru) borgar fyrirfram eða fær reikning í heimabanka. Þegar hann samþykkir skilmála og/eða greiðir fyrir vöru er ekki hægt að hætta við pöntun. Ef um netnámskeið er að ræða er ekki hægt að fara fram á endurgreiðslu eftir að greiðsla hefur verið innt af hendi.

Endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur ekki rétt á endurgreiðslu eða að hætta við greiðslu eftir að búið er að samþykkja skilmála og/eða greiða fyrir vöru. Endurgreiðsluréttur stofnast ekki ef þáttakandi hefur ekki nýtt sér vöruna eða þjónustuna sem keypt var.

Verð og áskrift

Verð fyrir þjónustu Peak Fitness er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og má finna verð hverjar þjónustu fyrir sig á síðu Peak Fitness. Peak Fitness áskilur sér rétt til að breyta verðum og ber ábyrgð á því að þau séu rétt hverju sinni á heimasíðu Peak Fitness. Þegar samþykkt hafa verið skilmálar er kominn á samningur milli Peak Fitness og notanda. Samningar eru með binditíma 3 mánuðir + eða 6 mánuðir + og framlengjast þeir ekki sjálfkrafa að binditíma loknum. Notendum er þó ávallt frjálst að óska eftir framlengingu. Greiði notandi ekki innan 10 daga frá gjalddaga þá lokast á aðgang hans að innri vef Peak Fitness. Það er á ábyrgð notanda að réttar greiðsluupplýsingar séu gefnar við skráningu.


Uppsögn samnings

Þegar kominn er á samningur um kaup á þjónustu Peak Fitness þá er ekki hægt að stöðva þjálfun/þjónustu fyrr en að binditíma loknum. Á móti framlengist binditími ekki sjálfkrafa. Komi til uppsagnar af heilsufarsástæðum þá skal láta þjálfara vita svo hægt sé að ráðstafa því en uppsögn á ekki rétt á sér. Peak Fitness áskilur sér rétt til að skoða hvert tilvik fyrir sig og meta eftir aðstæðum. Fari notandi ekki eftir skilmálum þessum þá áskilur Peak Fitness sér rétt til að segja samningi upp um þjónustu upp án nokkurs fyrirvara eða endurgreiðslna á því námskeiði sem notandi skráði sig í og klára að greiða fyrir tímabilið.

Eigin ábyrgð

Athugaðu að kaupandi ber ábyrgð á framkvæmd og niðurstöðu af vörum eða þjónustu frá Peak fitness ehf. Kaupandi ber ábyrgð á eigin heilsu og verður að treysta sér til að framkvæma æfingar eða til að nýta aðra þjónustu sem hann fær hjá Peak fitness ehf. Við hvetjum kaupanda til að hlusta á eigin líkama og verður ávallt að huga að eigin getu þegar tekin er ákvörðun um að kaupa og nýta sér þjónustu hjá Peak fitness ehf. Ef um meiðsli eða önnur veikindi er að ræða hvetjum við iðkanda til að ráðfæra sig við sérfræðing áður en keypt er þjónustu hjá Peak fitness ehf.

Með kaupum á vöru eða þjónustu hjá Peak fitness ehf staðfestir kaupandi að hann beri þessa ábyrgð (eigin áhættu). 



Takmörkun ábyrgðar

Peak Fitness ber ekki ábyrgð á: 

Meiðslum, slysum, mistökum eða öðru sem kann að leiða til skaðabótaskyldu eða refsiskyldu. Notandi nýtir þjónustu Peak Fitness á eigin ábyrgð. 

 

Óþægindum eða tjóni, beinu eða óbeinu, vegna bilana í tölvu- eða hugbúnaðarkerfum. 

 

Tjóni eða óþægindum sem kunna að hljótast af því hvers konar misnotkun eða mistökum við meðferð upplýsinga sem fara á milli þjónustuveitanda og notanda. Hér getur t.d. átt við ef þriðji aðili brýst inn í tölvukerfi þjónustuveitanda PeakFitness eða tölvukerfi Peak Fitness/notenda og stelur eða misnotar upplýsingar á annan hátt.

 

Tjóni eða óþægindum vegna annara atvika sem talin eru óviðráðanleg (e. force majeure).


Neinum upplýsingum eða gögnum sem notandi sendir til Peak fitness í gegnum innri vefinn. FA fitness skuldbindur sig til að vernda upplýsingar og gögn notenda eftir fremsta megni.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Peak fitness ehf á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Breytingar 

Peak fitness ehf áskilur sér rétt til þess að breyta skilmálum sínum án fyrirvara. Breytingarnar taka gildi þegar uppfærðir skilmálar hafa verið birtir hér á síðunni.

 

Notendur

Með hugtakinu „notendur“ í hvaða falli sem er, fleirtölu eða eintölu, er átt við þá sem nýtir sér þjónustu Peak Fitness. Allir þeir sem nýta sér þjónustu Peak Fitness verða að lesa skilmála þessa og samþykkja við skráningu á vefsvæði. Notendur fá aðgang að innri vef Peak Fitness og bera þeir ábyrgð á að tryggja leynd aðgangsupplýsinga sinna, þ.e. notendanafns og lykilorðs. Notendum er óheimilt að deila aðgangsupplýsingum með öðrum aðilum eða veita öðrum aðgang að innri vef Peak Fitness. Peak Fitness ber enga ábyrgð á hvers kyns tjóni, beinu eða óbeinu, sem kann að hljótast af því að aðrir aðilar komist yfir aðgangsupplýsingar notenda. Verði notandi þess var að óviðkomandi aðili hefur komist yfir aðgangsupplýsingar hans að innra vef Peak Fitness, þá skal hann samstundis láta Peak Fitness vita. Notandi ber fulla ábyrgð á því að upplýsa Peak Fitness um heilsukvilla, ofnæmi og annað sem skipt getur máli við nýtingu á þjónstunni.

 

Ágreiningur

Rísi ágreiningur um viðskiptin sem verður ekki leystur með öðrum hætti en aðkomu dómstóla skal mál rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Nánari upplýsingar

Ef þú þarft nánari upplýsingar eða vilt koma að ábendingum eða kvörtunum, sendu okkur þá fyrirspurn á annajgisla@gmail.com og við svörum þér eins fljótt og auðið er.

Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1.mars 2025.